Bournemouth vill 70 milljónir punda fyrir Semenyo - Mörg félög á eftir Elliott - Branthwaite framlengir við Everton
   lau 28. júní 2025 17:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Thun
Karólína Lea tapaði veðmáli gegn Gylfa frænda sínum
Icelandair
EM KVK 2025
Karólína fagnar hér marki sínu á síðasta Evrópumóti.
Karólína fagnar hér marki sínu á síðasta Evrópumóti.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðskonan Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er á leið á sitt annað stórmót með Íslandi.

Hún spilaði einnig með liðinu á EM 2022 þar sem hún skoraði meðal annars frábært mark gegn Ítalíu. Hún fagnaði því marki af mikilli innlifun með því að renna sér á hnjánum.

Karólína sagði frá því í viðtali við Fótbolta.net á dögunum að hún hefði gert veðmál við frænda sinn, Gylfa Þór Sigurðsson, varðandi fagn ef hún skorar á EM 2025. Hún tapaði því veðmáli.

„Það hefði verið skemmtilegra ef við hefðum unnið leikinn, ég verð að skjóta því inn. Það var samt skemmtileg lífsreynsla að skora á stórmóti," sagði Karólína um markið 2022.

„Fagnið var gott. Ég veit ekki enn hvað kom yfir mig," sagði Karólína.

„Þú ert búin að lofa fagni á þessu móti, undirbúið ykkur," skaut Diljá Ýr Zomers, liðsfélagi hennar í landsliðinu, inn í.

„Ég segi ekki hvað það er. Vonið bara að ég skori svo þið fáið að sjá það. Ég er að gera veðmál við Gylfa frænda minn. Þetta verður bara að koma í ljós. Veðmálið var hver myndi vinna Þjóðadeildina, ég sagði Spánn og hann Portúgal. Það var Portúgal sem vann í vító þó Spánn hefði verið miklu betra liðið. Ég þarf að gera þetta fagn og vonandi fáið þið að sjá það," sagði Karólína.

Hér fyrir neðan má sjá markið sem hún skoraði 2022 og fagnið með því.


Diljá og Karólína: Úr Krikanum á Evrópumótið með Íslandi
Athugasemdir
banner
banner
banner