Byrjunarlið Breiðabliks og Víkings: Miklar breytingar á báðum liðum - Gylfi á bekknum

Gylfi skoraði úr vítaspyrnu á fimmtudag.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ívar Örn snýr aftur eftir að hafa verið í leikbanni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gylfi skoraði úr vítaspyrnu á fimmtudag.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kristófer Ingi Kristinsson, Andri Rafn Yeoman, Davíð Ingvarsson og Ívar Örn Árnason snúa allir aftur í liðið.
Úr liðinu víkja þeir Arnar Bjarki Gunnleifsson, Gabríel Snær Hallsson, Arnór Gauti Jónsson og Kristinn Jónsson.
Uppfært 13:44: Óli Valur Ómarsson mun ekki byrja leikinn og inn í lið Breiðabliks kemur Arnór Gauti Jónsson.
Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, gerir fimm breytingar á byrjunarliði sínu frá leiknum á fimmtudag.
Gylfi, Valdimar, Ekroth, Aron Elís og Daníel Hafsteinsson víkja úr liðinu. Ekroth er í leikbanni og er því ekki í hóp.
Inn í liðið koma þeir Jóhannes Kristinn Bjarnason, Tarik Ibrahimagic, Viktor Örlygur Andrason, Gunnar Vatnhamar og Erlingur Agnarsson.
Uppfært 13:38
Blikar hafa neyðst til þess að gera breytingu á byrjunarliði sínu. Óli Valur Ómarsson verður ekki til taks og kemur Arnór Gauti Jónsson því inn í byrjunarliðið.
Byrjunarlið Breiðablik
Anton Ari Einarsson, Ásgeir Helgi Orrason, Ívar Örn Árnason, Viktor Karl Einarsson (fyrirliði), Óli Valur Ómarsson, Aron Bjarnason, Ágúst Orri Þorsteinsson, Davíð Ingvarsson, Viktor Örn Margeirsson, Kristófer Ingi Kristinsson, Andri Rafn Yeoman
Byrjunarlið Víkingur R.
Aron Snær Friðriksson, Sveinn Gísli Þorkelsson, Gunnar Vatnhamar, Erlingur Agnarsson, Viktor Örlygur Andrason (fyrirliði), Helgi Guðjónsson, Jóhannes Kristinn Bjarnason, Óskar Borgþórsson, Tarik Ibrahimagic, Karl Friðleifur Gunnarsson, Elías Már Ómarsson

Ívar Örn snýr aftur eftir að hafa verið í leikbanni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð




