Martínez um Ronaldo: Það væri barnalegt

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Roberto Martínez, þjálfari portúgalska landsliðsins, ætlar áfram að standa við bakið á Cristiano Ronaldo en gæti gert breytingar fyrir leikinn í 32-liða úrslitunum.
Ronaldo hefur byrjað alla þrjá leiki portúgalska liðsins á mótinu á meðan Argentína og Noregur byrjuðu með Lionel Messi og Erling Braut Haaland á bekknum í lokaumferðinni.
Martínez útskýrði hvers vegna hann gerði ekki slíkt hið sama.
„Við berum okkar leikmenn ekki saman við leikmenn annarra liða. Það væri barnalegt.
„Cristiano er vanur því að vera á réttum stað á réttum tíma. Hann er mjög agaður í sinni stöðu og skapar líka pláss fyrir liðsfélaga sína,“ sagði Martínez.
Portúgal mætir Króatíu í 32-liða úrslitum en Martínez viðurkennir að þar gæti hann þurft að gera breytingar. Það er þó ólíklegt að Ronaldo verði ein þeirra.
„Enginn efast um andlegt eða líkamlegt ástand hans en við gætum þurft að gera breytingar í næsta leik. Við byggjum allar ákvarðanir á þeim upplýsingum og gögnum sem við höfum í höndunum,“ sagði Martínez.
Ronaldo hefur skorað tvö mörk í þremur leikjum sínum á HM til þessa.