Fotbolti.net
28.07.14 - 17:30
Magnús Már Einarsson

Rúnar Páll og Klopp tvífarar - „Þetta er húmor\"

Líkir! Rúnar Páll og Jurgen Klopp.

Líkir! Rúnar Páll og Jurgen Klopp.

Canon

Mynd: Samsett - Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð / NordicPhotos

Margir Stjörnumenn vilja meina að Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari liðsins sé ansi líkur Jurgen Klopp þjálfara Borussia Dortmund.

,,Þetta er húmor og það er gaman að þessu,\" sagði Rúnar Páll við Fótbolta.net í dag aðspurður út í málið.

,,Við erum báðir með gleraugu og smá skegg, það er það eina sem er líkt með okkur. Hann er 2,20 á hæð og ég er 1,30 en þetta er húmor og það er gaman að þessu,\" sagði Rúnar léttur.
,,Klopp er frábær þjálfari og er búinn að gera frábæra hluti með þetta Dortmundar lið. Hann hefur lyft liðinu upp á þvílíkan stall.\"

Rúnar Páll hefur gert flotta hluti með lið Stjörnunnar en liðið er taplaust í 2. sæti í Pepsi-deildinni. Á fimmtudag mætir liðið síðan Lech Poznan í 3. umferð Evrópudeildarinnar.
Jurgen Klopp.

Jurgen Klopp.

Canon

Mynd: Getty Images

Rúnar Páll Sigmundsson.

Rúnar Páll Sigmundsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.