Fotbolti.net
28.07.16 - 20:41
Gabríel Sighvatsson

Bjarni Jó: Þetta er rússíbanareið

Auglýsing
Bjarni gat svo sannarlega brosað í dag.

Bjarni gat svo sannarlega brosað í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Borgun
<i>„Við vorum í smá ströggli varnarlega í fyrri hálfleik en um leið og við náðum að skora mark þá breyttist leikurinn og ég er stoltur af frammistöðu liðsins í dag,\"</i> sagði Bjarni Jóhannsson, þjálfari ÍBV, eftir 1-0 sigur á FH.
Með sigrinum í dag komst ÍBV í úrslit Borgunarbikarsins en þar mæta þeir Valsmönnum.

„Já, nú erum við komnir í úrslit og þetta er rússíbanareið að komast þangað og við erum alsælir með það,\" sagði Bjarni.

Gunnar Heiðar var á bekknum í dag en hann hefur ekkert komið við sögu í sumar.

„Hann lítur betur út en fyrir tíu dögum, hann er búinn að æfa vel og vonandi styttist í að hann geti hjálpað okkur í einhverjar mínútur,\" sagði Bjarni að lokum.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.