Seamus Coleman, hægri bakvörður Everton, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið. Hann er nú samningsbundinn félaginu fram í júní sumarið 2023.
Coleman gekk í raðir Everton frá Sligo Rovers árið 2009 og greiddi Everton 60 þúsund pund fyrir hann.
Coleman gekk í raðir Everton frá Sligo Rovers árið 2009 og greiddi Everton 60 þúsund pund fyrir hann.
Hann hefur spilað 350 leiki fyrir Everton og er einn vinsælasti leikmaður félagsins að mati stuðningsmanna.
Coleman var gerður að fyrirliða liðsins árið 2019 og er hann einnig fyrirliði írska landsliðsins.
Athugasemdir