Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 28. júlí 2022 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Klopp: Nunez þarf miklu meiri aðstoð
Mynd: EPA

Liverpool tapaði í gær æfingaleik gegn Red Bull Salzburg 1-0 þar sem ungstirnið Benjamin Sesko skoraði eina markið.


Jurgen Klopp stjóri Liverpool var ánægður með frammistöðu Darwin Nunez í leiknum en hann lék allan fyrri hálfleikinn.

„Flestir leikmennirnir í fyrri hálfleiknum verða að læra hratt hvað þeir eiga að gera. Darwin (Nunez) var mikið einn, það voru allir með í uppbyggingunni en stóðu alltof langt frá," sagði Klopp.

„Hann skoraði næstum því en hann þarf miklu meiri aðstoð í kringum sig til að halda öðrum leikmönnum uppteknum svo þeir einbeiti sér ekki að honum."

Næsti leikur Liverpool er gegn Manchester City um Samfélagsskjöldinn en leikurinn fer fram á King Power vellinum á sunnudaginn næstkomandi.


Athugasemdir
banner
banner
banner