06.10.26 - 10:03
Elvar Geir Magnússon
Meint hráka til rannsóknar hjá UEFA

Úr landsleik Ísraels og Írlands.

Mynd: EPA

Úr landsleik Ísraels og Írlands.

Mynd: EPA
UEFA, fótboltasamband Evrópu, hefur staðfest að verið sé að rannsaka ásakanir um að leikmaður Ísraels hafi hrækt á starfsmann Írlands í Þjóðadeildarleik liðanna um helgina.
Damien Doyle, styrktarþjálfari írska landsliðsins, fullyrðir að ísraelskur leikmaður hafi hrækt á sig þegar liðin yfirgáfu völlinn í hálfleik í 1-1 jafntefli í Þjóðadeildarleik sem spilaður var á hlutlausum velli í Backa Topola í Serbíu.

TENGT EFNI
Leikmaður Ísraels sakaður um að hrækja á aðstoðarmann Heimis
Heimir Hallgrímsson er landsliðsþjálfari Írlands en mikill hiti var í kringum viðureignirnar við Ísrael í Þjóðadeildinni í þessum landsleikjaglugga.
Írar hafa kvartað undan því að þurfa að spila við Ísrael og vill Heimir að UEFA haldi þjóðunum frá því að mæta hvorri annarri í framtíðinni.
Írar hafa kvartað undan því að þurfa að spila við Ísrael og vill Heimir að UEFA haldi þjóðunum frá því að mæta hvorri annarri í framtíðinni.