06.10.26 - 18:54
Brynjar Ingi Erluson
U21: Ísland í umspil eftir fábæran sigur í Færeyjum

Ísland er komið í umspil um sæti á Evrópumótið

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Benoný skoraði laglegt skallamark

Færeyjar U21 0 - 2 Ísland U21
0-1 Benoný Breki Andrésson ('14 )
0-2 Daníel Tristan Guðjohnsen ('17 )
Lestu um leikinn
0-1 Benoný Breki Andrésson ('14 )
0-2 Daníel Tristan Guðjohnsen ('17 )
Lestu um leikinn
Íslenska karlalandsliðið skipað leikmönnum 21 árs og yngri er komið í umspil um sæti á Evrópumótinu eftir 2-0 sigur á Færeyjum í Þórshöfn í kvöld.
Ísland þurfti að vinna og treysta á að Sviss tapaði stigum gegn Frökkum. Frakkar unnu 7-1 stórsigur og íslenska liðið gerði sitt með tveimur mörkum snemma leiks.
Benoný Breki Andrésson og Daníel Tristan Guðjohnsen skoruðu með þriggja mínútna millibili og Amin Cosic lagði fyrra markið upp. Hann tók fyrst glæsilega á móti boltanum á vinstri vængnum og sendi á fjærstöngina þar sem Benoný Breki skallaði í nærhornið.
Skömmu síðar renndi Daníel Freyr Kristjánsson boltanum frá vinstri í gegnum færeysku vörnina á nafna sinn Daníel Tristan sem kláraði örugglega.
Ísland fékk færi til að bæta við mörkum fyrir hlé. Davíð Helgi Aronsson skallaði í stöng og Daníel Freyr skaut yfir í ákjósanlegu færi.
Rólegra var yfir leiknum í síðari hálfleik og íslenska liðið lagði áherslu á að halda fengnum hlut. Það tókst og sætið í umspilinu var í höfn þegar flautað var til leiksloka.
Ísland endar í öðru sæti riðilsins með 18 stig. Dregið verður í umspilið á föstudag en leikirnir fara fram í næsta mánuði.