Fotbolti.net
27.07.26 - 20:50
Brynjar Ingi Erluson

Stones til Inter - „Here we go!“

Stones til Inter - „Here we go!“
Canon

Mynd: EPA

Varnarmaðurinn John Stones mun leika með Inter næstu tvö árin. Samkomulag er í höfn og er hann á leið til Mílanó í læknisskoðun.
Stones að gera tveggja ára samning við Inter
TENGT EFNI

Stones að gera tveggja ára samning við Inter

Fabrizio Romano greindi frá því fyrr í kvöld að Inter væri við það að ganga frá samkomulagi við Stones. Nú segir hann það hafa verið samþykkt af öllum aðilum.

Stones er 32 ára gamall og mun skrifa undir tveggja ára samning við Inter. Hann fær fjórar milljónir evra í árslaun.

Miðvörðurinn er á leið til Mílanó þar sem hann gengst undir læknisskoðun áður en skrifað verður undir.

Stones yfirgaf Manchester City í síðasta mánuði eftir tíu ára dvöl hjá félaginu. Fjölmörg félög í ensku úrvalsdeildinni höfðu augastað á honum en Inter hafði að lokum vinninginn.

Hann er nú að snúa aftur úr fríi eftir að hafa leikið með Englandi á heimsmeistaramótinu. Þar kom hann við sögu í fimm leikjum þegar Englendingar náðu sínum næstbesta árangri í sögu keppninnar með því að vinna bronsverðlaun.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.