Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 28. ágúst 2021 11:51
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hughes til Crystal Palace (Staðfest)
Mynd: EPA
Will Hughes er genginn til liðs við Crystal Palace frá Watford. Hann skrifar undir þriggja ára samning en kaupverðið er ekki gefið upp.

Hughes er 26 ára gamall miðjumaður sem er uppalinn hjá Derby County. Hann gekk til liðs við Watford áríð 2017.

Hann lék 119 leiki og skoraði 8 mörk fyrir Watford en hann kom ekkert við sögu hjá liðinu í fyrstu tveimur deildarleikjunum á þessari leiktíð.

Hughes er sjötti leikmaðurinn sem Patrick Vieira stjóri Crystal Palace fær til félagsins síðan hann tók við í sumar.
Athugasemdir
banner
banner