Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 28. ágúst 2021 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Leicester fær 7 milljónir fyrir Sowah (Staðfest)
Mynd: EPA
Leicester City er búið að selja miðjumanninn Kamal Sowah til Club Brugge í Belgíu fyrir 7 milljónir punda. Það er hæsta verð sem belgíska stórveldið hefur nokkurn tímann greitt fyrir leikmann.

Simon Mignolet er þriðji dýrasti leikmaður í sögu Club Brugge og kostaði hann 7 milljónir evra á sínum tíma, tveimur milljónum minna heldur en Sowah.

Sowah er 21 árs gamall og hefur gert góða hluti að láni hjá OH Leuven í Belgíu undanfarin ár. Hann er einn af betri miðjumönnum deildarinnar og er núna genginn til liðs við ríkjandi meistara.

Club Brugge er með sterkt lið og ætlar að verja titilinn sinn í ár. Liðið er komið með ellefu stig eftir fimm umferðir á nýju tímabili.
Athugasemdir
banner
banner