Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   lau 28. ágúst 2021 22:16
Arnar Laufdal Arnarsson
Toddi Örlygs: Getum gefið góðum liðum góðan leik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þorvaldur Örlygsson þjálfari Stjörnunnar var gríðarlega sáttur eftir öflugan 2-1 sigur gegn ríkjandi Íslandsmeisturum Vals í kvöld í 19. umferð Pepsi-Max deildar karla.

„Við erum mjög ánægðir, gott að fá þrjú stig á móti liði sem er mjög gott lið og erfitt að spila á móti en mér fannst við eiga mjög flottan fyrri hálfleik við vorum virkilega klókir og sniðugir að halda leiknum á góðum hraða, fengum góð færi og skorum frábært mark. Við fáum svo mark á okkur og þá snýst leikurinn þeim í vil og þeir pressa mikið á okkur og menn þurftu að hafa fyrir þessu en frábært mark hjá Bjössa og við klárum leikinn mjög vel," sagði Þorvaldur í viðtali eftir leik.

Lestu um leikinn: Valur 1 -  2 Stjarnan

Þorvaldur hlýtur að vera ánægður með seiglu liðsins í leiknum?

„Ég held bara að seigla hópsins í allt sumar hefur sínt sig, við áttum slæma byrjun og ekki náð að vinna eins marga leiki og var búist við en það er breyttur hópur en seigla hópsins er gríðarlega mikil og við erum með góða stuðningsmenn sem eru líka með mikla seiglu og hafa stutt við liðið þrátt fyrir mótlætið og það segir allt um hversu þéttur hópur er hjá Stjörnunni."

Stjörnumenn unnu báða leikina gegn Val á þessu tímabili þrátt fyrir skrítið tímabil.

„Jújú og töpum kannski sex stigum á móti liðum sem við teljum okkur eiga að vinna en við erum bara þannig lið sem getur lent í basli gegn hvaða liði sem er en við getum gefið góðum liðum góðan leik og tekið stig."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner