28.08.26 - 22:05
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sjáðu mörkin: Markaveisla og gríðarlega mikilvægur sigur KR

Kara Guðmundsdóttir

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Kara Guðmundsdóttir

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Haukar 3 - 5 KR
1-0 Halla Þórdís Svansdóttir ('9 )
1-1 Kara Guðmundsdóttir ('21 )
2-1 Ragnheiður Tinna Hjaltalín ('35 )
2-2 Kara Guðmundsdóttir ('56 )
2-3 Katla Guðmundsdóttir ('69 )
2-4 Katla Guðmundsdóttir ('83 )
2-5 Valgerður Gríma Sigurjónsdóttir ('88 )
3-5 Sara Björk Gunnarsdóttir ('90 )

KR vann frábæran sigur á Haukum í Lengjudeild kvenna í kvöld. Halla Þórdís Svansdóttir kom Haukum yfir snemma leiks en Kara Guðmundsdóttir jafnaði metin.
Ragheiður Tinna Hjaltalín sá til þess að Haukar voru með forystuna í hálfleik. KR hóf seinni hálfleikinn af krafti og Kara skoraði sitt annað mark og annað mark KR.
Katla Guðmundsdóttir, systir Köru, skoraði síðan þrennu og Valgerður Gríma Sigurjónsdóttir innsiglaði sigur KR. Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði sárabótamark fyrir Hauka undir lokin.
KR er í 2. sæti með 29 stig. Liðið er sex stigum á eftir toppliði Gróttu þegar sex stig eru eftir í pottinum. Grótta á leik til góða gegn Selfossi á morgun og getur tryggt sér toppsætið. Haukar eru í 4. sæti með 27 stig.

Kæru aðdáendur fótbolta. Hér eru 1 mínúta og 41 sekúnda með öllum 8 mörkunum sem voru skoruð í leik Hauka og KR. Leikur ársins? Já. Hann er kominn. ÞVÍLÍK VEISLA og það var Magnús Haukur Harðarson sem lýsti því sem fram fór - alls ekki af yfirvegun.
— Livey (@liveyevents) August 28, 2026
Ps. Lengjudeildarmörk kvenna… pic.twitter.com/61zjgr4Dyw
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Grótta | 15 | +23 | 35 |
| 2 | KR | 16 | +17 | 29 |
| 3 | HK | 16 | +13 | 27 |
| 4 | Haukar | 16 | +2 | 27 |
| 5 | Selfoss | 15 | +8 | 26 |
| 6 | ÍA | 15 | +6 | 21 |
| 7 | FHL | 15 | +2 | 21 |
| 8 | Keflavík | 16 | +4 | 18 |
| 9 | Völsungur | 15 | -9 | 12 |
| 10 | Tindastóll | 15 | -66 | 3 |