Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 28. september 2021 18:48
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Christopher Harrington ráðinn aðstoðarþjálfari KR (Staðfest)
Christopher Harrington.
Christopher Harrington.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR hefur gert tveggja ára samning við Jóhannes Karl Sigursteinsson um að hann stýri liðinu áfram.

Jóhannes Karl tók við KR í fyrra er liðið féll úr Pepsi Max-deildinni. Hann stýrði liðinu beinustu leið aftur upp og verður áfram þjálfari liðsins í efstu deild.

Hann er búinn að finna sér aðstoðarþjálfara fyrir næstu tímabil. Írinn Christopher Harrington hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá KR.

Ásamt því mun hann þjálfa 2. og 3. flokk félagsins.

Harrington er fyrrum þjálfari kvennaliðs Fram. Hann byggði þar upp lið og kom þeim á tveimur árum í úrslitakeppni 2. deildar. Árangurinn var eftirtektarverður.
Athugasemdir
banner
banner
banner