Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 28. september 2022 19:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Segir að Mane þurfi tíma til að sanna sig
Mynd: EPA

Sadio Mane hóf tímabilið af krafti með Bayern Munchen en hann skoraði í Ofurbikarnum, bikarnum og þrjú mörk í fyrstu þremur leikjunum í deildinni.


Hann hefur leikið sjö leiki í deildinni og ekki skorað fleiri mörk. Hasan Salihamidzic, íþróttastjóri Bayern München segir að Mane þurfi tíma til að aðlagast Bundesligunni.

„Ég hef trú á því að hann muni gera það. Ég tala regluega við hann. Ég veit hvernig það er að vera nýr í nýju landi, í öðruvísi fótbolta kúltúr," sagði Salihamidzic.

„Það verður allt betra og við munum fljótlega sjá það á vellinum líka. Hann er einn af bestu leikmönnum heims."


Athugasemdir
banner
banner
banner