28.10.13 - 23:06
Elvar Geir Magnússon
Guðmundur Steinn í Fram (Staðfest)

Guðmundur Steinn og Bjarni Guðjónsson.

Mynd: Heimasíða Fram

Guðmundur Steinn í leik í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðmundur Steinn og Bjarni Guðjónsson.

Mynd: Heimasíða Fram
Guðmundur Steinn Hafsteinsson er genginn í raðir Fram en hann var fyrirliði Víkings í Ólafsvík.
Hann var valinn besti leikmaður 1. deildarinnar í fyrra en fann sig ekki eins vel í Pepsi-deildinni í sumar en meiðsli settu þar strik í reikninginn.

Gríðarlegar breytingar hafa orðið á leikmannahópi Fram síðan Bjarni Guðjónsson tók við stjórnartaumunum. Sérstaklega hefur hann verið duglegur við að fá til sín unga leikmenn.
Bjarni sagði í fréttum Stöðvar 2 í kvöld að félagið væri ekki hætt að fá til sín leikmenn og stefnan væri sett á að fá til sín reynslumikla menn einnig. „Maður byggir ekki lið bara á ungum og efnilegum leikmönnum. Við ætlum að reyna að fá menn með meiri reynslu í hryggjarstykkið,\" sagði Bjarni en Guðmundur Steinn hefur öðlast mikla reynslu þrátt fyrir að vera ekki gamall.
Fréttatilkynning frá Fram:
Guðmundur Steinn Hafsteinsson semur við Fram til tveggja ára
Framherjinn Guðmundur Steinn Hafsteinsson skrifaði í kvöld undir tveggja ára samning við Fram. Guðmundur Steinn sem er 24 ára hefur tvö undanfarin ár leikið með Víking Ólafsvík en hann lék áður með Val.
Guðmundur Steinn var lykilmaður þegar Víkingur fór upp í úrvalsdeild 2012, þá skoraði hann 10 mörk í 20 leikjum og var valinn besti leikmaður 1. deildar af þjálfurum og fyrirliðum liðanna í deildinni. Hann var fyrirliði Víkings bæði árin í Ólafsvík
Guðmundur Steinn á að baki 5 leiki með U19 ára liði Íslands. Bjarni Guðjónsson þjálfari Fram segist hafa miklar væntingar til þessa nýjasta leikmanns félagsins. „Við erum ekki bara að fá flottan fótboltamann heldur einnig frábæran karakter.“
Fram býður Guðmund Stein hjartanlega velkominn í Safamýrina.