Guðný Árnadóttir, varnarmaður Vals, er á óskalistanum hjá erlendum félögum að sögn mbl.is.
Eitt liðanna sem vill fá Guðnýju er AC Milan á Ítalíu en Berglind Björg Þorvaldsdóttir spilaði þar á láni síðari hlutann á síðasta tímabili.
Eitt liðanna sem vill fá Guðnýju er AC Milan á Ítalíu en Berglind Björg Þorvaldsdóttir spilaði þar á láni síðari hlutann á síðasta tímabili.
Guðný er einnig eftirsótt af liðum á Norðurlöndunum og ef hún ákveður að spila þar á næstu leiktíð er Kristianstad í Svíþjóð, lið Elísabetar Gunnarsdóttur, líklegasti áfangastaðurinn samkvæmt heimildum mbl.is.
Hin tvítuga Guðný er uppalin hjá FH en hún er á sínu öðru tímabili hjá Val.
Athugasemdir