Henry Winter, einn vinsælasti fjölmiðlamaður Bretlands, segir að Ole Gunnar Solskjær eigi meira hrós skilið.
Solskjær stýrði United til 5-0 sigurs gegn RB Leipzig í Meistardeildinni í kvöld. Liðið er með sex stig eftir leiki gegn liðum sem fóru í undanúrslit Meistaradeildarinnar á síðustu leiktíð; PSG og Leipzig.
„Önnur áminning um að Solskjær sé betri knattspyrnustjóri en talað er um," skrifar Winter á Twitter.
„Tígulkerfi hans virkaði. Liðsvalið hans virkaði. Skiptingar hans virkuðu. Hann fékk frábæra frammistöðu út úr Pogba og Fred, sem oft eru gagnrýndir. Hann hafði betur gegn Nagelsmann," skrifar Winter jafnframt.
Man Utd hefur ekki farið jafnvel af stað í ensku úrvalsdeildinni og í Meistaradeildinni. Í deildinni er liðið með sjö stig eftir fimm leiki, en næsti leikur United er gegn Arsenal um næstu helgi.
Another reminder that Ole Gunnar Solskjaer's a better manager than often credited. His diamond system worked. His selections worked. His substitutions worked. He got excellent performances from Pogba and Fred who often get questioned. He outwitted Nagelsmann. 5-0 f-t. #mufc
— Henry Winter (@henrywinter) October 28, 2020
Athugasemdir