Bjartur Bjarmi í Aftureldingu (Staðfest)


Mynd: Afturelding Facebook


Mynd: Afturelding Facebook

Bjartur Bjarmi Barkarson er genginn til liðs við Aftureldingu en hann gerir samning út sumarið 2024.
Bjartur er tvítugur og kemur til liðsins frá Víkingi Ólafsvík. Hann getur leikið á miðju og á kanti en hann skoraði átta mörk í 16 leikjum fyrir Víking í 2. deildinni í sumar.
Hann á 47 leiki fyrir Ólafsvíkinga í næst efstu deild og einn í efstu deild.
„Mér líst mjög vel á verkefnið og þetta verður spennandi sumar. Það sem hefur alltaf heillað mig við Aftureldingu er hvað þeir spila vel, halda í boltann og taka völdin í leikjum," sagði Bjartur eftir undirskriftina.
„Afturelding býður Bjart Bjarma hjartanlega velkominn í Mosfellsbæinn! segir í tilkynningu félagsins.





