Ralph Hasenhüttl, knattspyrnustjóri Southampton, viðurkennir að félagið gæti endurkallað Nathan Tella frá Burnley í janúar.
Tella er hjá Burnley á lánssamningi og er kantmaðurinn knái búinn að skora sex mörk í fimmtán leikjum í Championship deildinni.
Southampton hefur ekki gengið nægilega vel að skora á leiktíðinni þar sem liðið er komið með 11 mörk í 12 leikjum.
„Við þurfum að vega og meta stöðuna vel áður en við tökum ákvörðun varðandi Tella," sagði Hasenhüttl.
„Við gætum fengið hann til baka en það hefur engin ákvörðun verið tekin. Við þurfum líka að skoða hvað hann sjálfur vill gera."
Athugasemdir