Fotbolti.net
27.10.26 - 19:51
Ívan Guðjón Baldursson

Rob Edwards hafnaði Burnley

Rob Edwards hafnaði Burnley
Canon

Mynd: EPA

Sky Sports greinir frá því að Rob Edwards hafi hafnað tækifærinu að taka við Burnley eftir að Nicky Hayen var rekinn á dögunum.
Rekinn eftir 14 leiki með Burnley (Staðfest)
TENGT EFNI

Rekinn eftir 14 leiki með Burnley (Staðfest)

43 ára Edwards er án starfs eftir að hafa verið rekinn frá Wolves í byrjun sumars, en hann féll með liðið úr úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

Edwards, sem hefur meðal annars þjálfað Middlesbrough, Luton og Watford á ferlinum, vill ekki taka við Burnley eftir að hafa rætt við stjórnendur félagsins í gær.

Burnley hefur einnig áhuga á Carlos Corberán sem er án félags, en Sky telur litlar líkur á að þær viðræður muni bera árangur.

Hayen var rekinn eftir 4-1 tap gegn Lincoln City um helgina og er Burnley í fallsæti í Championship deildinni, með 8 stig eftir 12 umferðir.

Steven Gerrard, Craig Bellamy og Robbie Keane hafa verið nefndir til sögunnar sem mögulegir arftakar hjá Burnley.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough12+1025
2Swansea12+323
3West Ham12+1722
4Wolves12+421
5West Brom12+321
6Southampton12+1220
7Birmingham12+820
8QPR12+820
9Stoke City12+220
10Blackburn12+318
11Portsmouth12+118
12Sheffield Utd12+116
13Millwall12-115
14Bristol City12-315
15Lincoln City12-715
16Cardiff City12+214
17Wrexham12-314
18Bolton12-714
19Charlton Athletic12-714
20Norwich12-212
21Watford12-1011
22Burnley12-88
23Derby County12-117
24Preston NE12-155
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.