27.10.26 - 21:45
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Roma og Como komu til baka og sigruðu

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Það hófust tveir leikir samtímis í ítalska boltanum í kvöld þegar Roma tók á móti Cagliari á meðan Torino fékk Como í heimsókn í spennandi leikjum.
Á Ólympíuleikvanginum í Róm var leikurinn var opinn og jafn. M'Bala Nzola kom gestunum frá Sardiníu yfir með marki úr vítaspyrnu en bakvörðurinn efnilegi Emanuele Lulli jafnaði muninn og lagði svo upp fyrir Niccoló Pisilli, svo staðan var 2-1 í leikhlé.
Rómverjar héldu forystunni allt þar til Daniel Maldini kom inn af bekknum og jafnaði metin eftir gott hlaup inn fyrir vörnina á 81. mínútu. Heimamenn svöruðu með að blása til sóknar og endurheimti Rodrigo Mora forystuna skömmu síðar áður en Donyell Malen innsiglaði 4-2 sigur.
Roma er enn taplaust á deildartímabilinu og situr í þriðja sæti í Serie A, með 21 stig eftir 9 umferðir. Cagliari er með 13 stig.
Torino náði þá forystunni á heimavelli gegn Como þegar Ché Adams kláraði af stuttu færi eftir slæm mistök hjá Jacobo Ramón í varnarlínunni.
Torino hélt forystunni og varðist vel, en réði að lokum ekki við lærlinga Cesc Fábregas sem blésu til þungrar sóknar á lokakaflanum. Ramón lét fyrirgefa sér mistökin frá því í fyrri hálfleik með að skalla fyrirgjöf frá Nico Paz í netið skömmu áður en Nico Paz skallaði sjálfur fyrirgjöf frá Yan Couto inn til að taka forystuna.
Torino náði ekki að skapa hættu í uppbótartímanum en þess í stað setti Martin Baturina boltann í netið eftir mistök í varnarlínunni og urðu lokatölurnar 1-3 fyrir gestina.
Como er í fjórða sæti með 20 stig eftir sigurinn. Torino situr eftir við hlið Cagliari með 13 stig.
Roma 4 - 2 Cagliari
0-1 M'Bala Nzola ('10 , víti)
1-1 Emanuele Lulli ('15 )
2-1 Niccolo Pisilli ('21 )
2-2 Daniel Maldini ('81 )
3-2 Rodrigo Mora ('85 )
4-2 Donyell Malen ('87 )
Torino 1 - 3 Como
1-0 Che Adams ('24 )
1-1 Jacobo Ramon ('82 )
1-2 Nico Paz ('87 )
1-3 Martin Baturina ('92 )