Fotbolti.net
27.10.26 - 23:55
Ívan Guðjón Baldursson

Flick smeykur: Ber mjög mikla virðingu fyrir Mourinho

Flick smeykur: Ber mjög mikla virðingu fyrir Mourinho
Canon

Mynd: EPA

Hansi Flick þjálfari Barcelona var svekktur eftir tap á heimavelli í El Clásico slagnum gegn Real Madrid um helgina.
Frá í tvo mánuði eftir El Clásico: Tímabilið er langt
TENGT EFNI

Frá í tvo mánuði eftir El Clásico: Tímabilið er langt

Börsungar verma enn toppsæti deildarinnar en Flick er smeykur vegna meiðslavandræða í varnarlínunni. Bakvörðurinn ungi Xavi Espart fór meiddur af velli í fyrri hálfleik og bætist því við meiðslalistann þar sem má finna þrjá aðra varnarmenn. Jules Koundé, Eric García og Andreas Christensen eru einnig að glíma við meiðsli og voru ekki í hóp um helgina.

„Ég er ekki ánægður með frammistöðuna, það vantaði ferskleika og orku í liðið. Fyrri hálfleikurinn var ekki nógu góður en við vorum betri eftir jöfnunarmarkið í seinni hálfleik. Það er rosalega mikið leikjáalag og meiðslavandræðin hjálpa ekki," sagði Flick. „Staðan er sérstaklega slæm í varnarlínunni, við munum þurfa að nota leikmenn úr akademíunni í næstu leikjum. Ég vona að Christensen verði klár í slaginn í næstu viku.

„Strákarnir eru mjög þreyttir. Raphinha var svo þreyttur að hann bað um skiptingu undir lokin. Ég vildi nota hann sem tíu á lokamínútunum en það var ekki hægt. Við þurfum að greina hvað fór úrskeiðis í þessum tapleikjum, en þetta er partur af því að keppa í íþróttum og núna skiptir miklu máli að bregðast rétt við."


Fyrir upphafsflautið talaði Flick um þá miklu virðingu sem hann ber fyrir José Mourinho þjálfara Real Madrid.

„Ég ber gríðarlega mikla virðingu fyrir Mourinho, hann hefur sýnt gæðin sín hjá hverju einasta félagi sem hann hefur þjálfað. Ég man að ég hitti hann einu sinni í Madríd þegar ég var aðstoðarþjálfari Joachim Löw í þýska landsliðinu. Við heimsóttum Real út af því að við áttum nokkra landsliðsmenn í liðinu þeirra og ég get sagt ykkur að allir leikmenn sem höfðu starfað með honum töluðu um hann af mjög mikilli virðingu. Ég deili þeirri skoðun," sagði Flick.

„Hann er kollegi minn sem hefur notið mikils árangurs á sínum ferli. Hann er frábær þjálfari sem ég ber mjög mikla virðingu fyrir."
Flick smeykur: Ber mjög mikla virðingu fyrir Mourinho
Canon

Mynd: EPA

Flick smeykur: Ber mjög mikla virðingu fyrir Mourinho
Canon

Mynd: EPA

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona10+2927
2Atletico Madrid10+1225
3Real Madrid10+1524
4Betis10+220
5Real Sociedad10+119
6Sevilla10017
7Alaves10+312
8Athletic9+312
9Celta10+312
10Villarreal10+112
11Deportivo10011
12Osasuna10-1011
13Racing Santander10-1111
14Levante10-310
15Elche10-310
16Vallecano9-89
17Getafe10-109
18Espanyol10-28
19Valencia10-106
20Malaga10-125
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.