Fotbolti.net
27.10.26 - 23:40
Ívan Guðjón Baldursson

Mbappé missir stuðning í Kína vegna ummæla í spjallþætti

Mbappé missir stuðning í Kína vegna ummæla í spjallþætti
Canon

Mynd: Af netinu

Franska ofurstjarnan Kylian Mbappé hefur beðist afsökunar á ummælum sem hann lét falla í frönskum spjallþætti og fóru fyrir brjóstið á mörgum Kínverjum.
Spánn: Mbappe hetjan í El Clasico
TENGT EFNI

Spánn: Mbappe hetjan í El Clasico

Mbappé hefur notið mikilla vinsælda í Kína en ýmis fyrirtæki þaðan hafa ákveðið að binda enda á samstarf sitt við sóknarmanninn knáa vegna ummæla hans.

Mikið er grínast með að Mbappé sé frekur einstaklingur og hefur hann verið titlaður sem 'einræðisherrann' á samfélagsmiðlum. Leikmaðurinn sjálfur segist hafa gaman af gríninu, þó það beinist gegn honum og orðrómum um óhóflegar kröfur sem hann gerði fyrst til PSG og núna til Real Madrid.

„Það sem mér finnst fyndnast af þessu öllu er myndbandið af einum náunga, ég held að það sé einhver kínverskur einræðisherra," sagði Mbappé í spjallþættinum og var umrætt myndband spilað. Í myndbandinu er Mbappé líkt við Mao Zedong, fyrrum einræðisherra Kína.

Þessi ummæli vöktu reiði meðal Kínverja sem telja Mbappé hafa sýnt þjóðinni vanvirðingu með þessum ummælum. Mbappé hefur beðist afsökunar sem og La Liga, efsta deild spænska boltans sem hefur mikilvæg viðskiptatengsli við Kína.

„Ég sagði þetta án þess að átta mig á mikilvægi orða minna. Ég skil að ég særði mikið af fólki í Kína og í kínverskum samfélögum um allan heim og vil biðjast afsökunar," sagði Mbappé og tók La Liga undir með tilkynningu í svipuðum dúr.

Það eru liðin rétt rúmlega 50 ár síðan Mao lést en viðfangsefnið er enn mjög viðkvæmt í Kína og því ákváðu hin ýmsu fyrirtæki að enda samstarf sitt við Mbappé. Kínverjar eru mjög móðgaðir eftir að Mbappé lýsti Mao sem 'einhverjum kínverskum einræðisherra.'"
Mbappé missir stuðning í Kína vegna ummæla í spjallþætti
Canon

Mynd: EPA

Mbappé missir stuðning í Kína vegna ummæla í spjallþætti
Canon

Mynd: Af netinu

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.