28.10.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía í dag - Þórir og Mikael taka á móti stórveldum

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ítalska deildartímabilið hefur hingað til einkennst af mikilli markaskorun og eru fimm leikir á dagskrá í dag og kvöld, þar sem tvö Íslendingalið eiga heimaleiki.
Þórir Jóhann Helgason og félagar í Venezia taka á móti Ítalíumeisturum Inter sem þurfa á sigri að halda í toppbaráttunni. Á sama tíma eiga AC Milan og Parma heimaleiki gegn Bologna og Udinese.
Í kvöld má búast við því að Mikael Egill Ellertsson sé á sínum stað í byrjunarliði Genoa eftir að hafa skorað draumamark til að tryggja sigur um helgina. Genoa tekur á móti Juventus á sama tíma og Napoli heimsækir Monza.
Mikael skoraði markið gegn sínum fyrrum vinnuveitendum í Venezia og fagnaði ekki af virðingu við félagið, en liðsfélagarnir í sigurliði Genoa flykktust að honum og fögnuðu fyrir hans hönd.
Leikir dagsins
17:30 Milan - Bologna
17:30 Parma - Udinese
17:30 Venezia - Inter
19:45 Genoa - Juventus
19:45 Monza - Napoli