28.10.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England í dag - Stórleikir í Manchester og Liverpool

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Það eru fimm leikir á dagskrá í 16-liða úrslitum enska deildabikarsins í kvöld þegar tíu úrvalsdeildarfélög mæta til leiks.
Fjörið hefst í Manchester þegar stórveldi Man City tekur á móti spútnik liði Brighton sem hefur farið af stað af miklum krafti á nýju tímabili.
Bournemouth spilar svo við Aston Villa í gífurlega spennandi slag á sama tíma og Fulham og Sunderland eiga heimaleiki gegn Crystal Palace og Brentford. Hákon Rafn Valdimarsson spilaði í sigri Brentford í deildabikarnum í lok ágúst en var ekki í hóp vegna veikinda í síðasta leik gegn Reading. Ellery Balcombe átti fínan leik í fjarveru Hákonar.
Liverpool og Chelsea eigast svo við í lokaleik kvöldsins. Stórleikurinn fer fram á Anfield.
Leikir kvöldsins
19:30 Man City - Brighton
19:45 Bournemouth - Aston Villa
19:45 Fulham - Crystal Palace
19:45 Sunderland - Brentford
20:00 Liverpool - Chelsea