Fotbolti.net
28.10.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Andri Júl tekinn við hjá KÁ (Staðfest)

Andri Júl tekinn við hjá KÁ (Staðfest)
Canon

Mynd: KÁ Kásvöllum kásvellir

Andri Júlíusson er tekinn við sem aðalþjálfari hjá KÁ í Hafnarfirði en hann býr yfir mikilli reynslu úr fótboltaheiminum.
Andri er Skagamaður sem býr yfir reynslu sem þjálfari Kára eftir að hafa leikið fyrir ÍA stærsta hluta ferilsins. Hann lék einnig í neðri deildum norska boltans og raðaði svo inn mörkunum með Kára þegar hann snéri aftur til Íslands á lokametrum ferilsins, áður en hann tók við þjálfun liðsins.

Andri er rétt rúmlega fertugur og á leiki að baki fyrir Fram og KA í íslenska boltanum. Hann spilaði tvo leiki fyrir U21 landsliðið á sínum tíma.

„Andri býr yfir mikilli reynslu úr íslenskum fótbolta og við erum gríðarlega ánægð með að fá hann til félagsins. Fram undan er spennandi uppbygging og nýr kafli á Ásvöllum," segir meðal annars í tilkynningu frá KÁ.

Ásvellir féllu úr 3. deild í sumar og munu því leika í 4. deild á næsta ári.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.