Fotbolti.net
27.10.26 - 20:40
Ívan Guðjón Baldursson

Rangstöðuregla Wenger nýtur lítils stuðnings

Rangstöðuregla Wenger nýtur lítils stuðnings
Canon

Mynd: EPA

Arséne Wenger, fyrrum þjálfari Arsenal, hefur undanfarin ár starfað sem yfirmaður þróunarmála hjá Alþjóðafótboltasambandinu FIFA.
Tekst Wenger að breyta rangstöðureglunni?
TENGT EFNI

Tekst Wenger að breyta rangstöðureglunni?

Hann hefur komið að ýmsum hugmyndum og reglubreytingum í starfi sínu en hugmynd hans um að breyta rangstöðureglunni nýtur ekki nægs stuðnings til að verða að lögum.

Efsta deild í Kanada prófaði tillögu Wenger á síðustu leiktíð, en nýja rangstöðureglan virkar þannig að sóknarmaður er réttstæður ef einhver hluti líkama hans er jafn einhvers hluta líkama næstaftasta leikmanns varnarliðsins.

Þegar tölfræðin er skoðuð minnkuðu rangstöðudómar í kanadísku deildinni um 54% á milli tímabila og bættust í heildina þrettán mörk við markaskorun deildarinnar.

Þessu fylgdi þó einnig neikvæð þróun þar sem félög lækkuðu varnarlínurnar sínar að meðaltali um þrjá metra til þess að minnka bilið á milli varnarlínu og markmanns. Þá áttu lið í miklum erfiðleikum með að finna lausnir við að verjast föstum leikatriðum út af nýju reglunni.

Á sama tíma var innleitt sérstakt VAR kerfi þar sem þjálfarar liða gátu mótmælt tveimur dómaraákvörðunum í hverjum leik, ekki ósvipað því sem tíðkast í bandarísku NBA deildinni.

Fleiri mögulegar reglubreytingar voru ræddar á fundi IFAB, sem heldur utan um reglur fótboltans og hefur vald til að breyta þeim. Sú hugmynd að breikka nýju fimm sekúndna regluna sem var samin fyrir markspyrnur og innköst nýtur lítils stuðnings, en lítill hópur innan FIFA vill að reglan gildi einnig í aukaspyrnum og hornspyrnum.

Regla sem snýr að meiðslum markvarða nýtur mikils stuðnings og er verið að prufukeyra hana í enska boltanum. Þegar markvörður meiðist og fær aðhlynningu þarf liðsfélagi hans að yfirgefa völlinn í eina mínútu. Þetta er gert til að sporna við því að markmenn brjóti upp leiki og eyði tíma með að þykjast verða fyrir meiðslum.

Dómarar í ensku úrvalsdeildinni hafa nýtt þessa reglu tvisvar í 80 úrvalsdeildarleikjum á tímabilinu.
Rangstöðuregla Wenger nýtur lítils stuðnings
Canon

Mynd: EPA

Rangstöðuregla Wenger nýtur lítils stuðnings
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.