Fotbolti.net
27.10.26 - 20:21
Ívan Guðjón Baldursson

Óvænt tap hjá Al-Hilal í Katar - Mahrez og Toney í stuði

Óvænt tap hjá Al-Hilal í Katar - Mahrez og Toney í stuði
Canon

Mynd: Al Shamal

Það komu nokkrar stórstjörnur við sögu í Meistaradeild Asíu í dag og í gær þar sem kemur mest á óvart að lærlingar Simone Inzaghi í stjörnum prýddu liði Al-Hilal töpuðu í Katar.
Wesley Saïd, sem var mikilvægur hlekkur í sterku liði Lens í frönsku deildinni á síðustu leiktíð, skoraði fyrsta mark leiksins fyrir heimamenn í liði Al-Shamal. Salem Al-Dawsari svaraði fyrir gestina eftir stoðsendingu frá Théo Hernández svo staðan var jöfn eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik.

Heimamenn tóku völdin á vellinum eftir leikhlé og átti Riyad Mahrez tvær stoðsendingar til að koma Al-Shamal í tveggja marka forystu. Al-Hilal mistókst að skapa mikla hættu í síðari hálfleik svo lokatölur urðu 3-1 og er sádi-arabíska stórveldið með 6 stig eftir þrjár fyrstu umferðir deildarkeppninnar, einu stigi meira heldur en Al-Shamal sem er taplaust eftir jafntefli í fyrstu tveimur umferðunum.

Þessum leik var að ljúka en í gær mættu fleiri stórlið frá Sádi-Arabíu til leiks og gerði Al-Qadsiah jafntefli við katarska stórveldið Al-Sadd eftir jafnan leik.

Gestirnir í liði Al-Sadd náðu forystunni á 74. mínútu en Mexíkóinn markaóði Julian Quinones bjargaði stigi fyrir heimamenn svo lokatölur urðu 1-1. Julian Weigl, Mateo Retegui og Tijjani Reijnders komu allir við sögu í liði Al-Qadsiah á meðan Roberto Firmino og Paulo Otávio voru meðal byrjunarliðsmanna Al-Sadd.

Al-Qadsiah er með 5 stig eftir þrjár fyrstu umferðirnar, en þetta var fyrsta stigið sem Firmino og félagar næla sér í.

Cristiano Ronaldo og félagar í Al-Nassr áttu þá að spila við Al-Wasl en leiknum var frestað vegna vandræða í ferðalagi Al-Wasl, sem er staðsett í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Fyrrum stjörnur úr Evrópuboltanum skoruðu að lokum í naumum sigrum hjá Al-Ahli og Al-Ittihad.

Ivan Toney komst á blað er Al-Ahli rétt marði Al-Gharafa frá Katar með sigurmarki frá Matheus Goncalves á 86. mínútu, en Roger Ibanez og Francisco Trincao voru einnig meðal byrjunarliðsmanna.

Houssem Aouar og Youssef En-Nesyri gerðu mörkin í endurkomusigri Al-Ittihad gegn Neftchi Fergana frá Úsbekistan. En-Nesyri setti sigurmarkið í uppbótartíma venjulegs leiktíma.

Steven Bergwijn átti stoðsendingu og voru Danilo Pereira og Georginio Wijnaldum einnig meðal byrjunarliðsmanna.

Al-Ahli er með 7 stig eftir þrjár umferðir á meðan Ittihad er komið upp í 4 stig.

Al-Shamal 3 - 1 Al-Hilal
1-0 Wesley Said ('8)
1-1 Salem Al-Dawsari ('32)
2-1 B. Bounedjah ('48)
3-1 Ben Romdhane ('54)

Al-Qadsiah 1 - 1 Al-Sadd
0-1 Akram Afif ('74)
1-1 Julian Quinones ('84)

Neftchi Fergana 1 - 2 Al-Ittihad
1-0 J. Iskanderov ('17, víti)
1-1 Houssem Aouar ('34)
1-2 Youssef En-Nesyri ('91)

Al-Ahli 2 - 1 Al-Gharafa
1-0 Ivan Toney ('4)
1-1 F. Coman ('53)
2-1 Matheus Goncalves ('86)
Óvænt tap hjá Al-Hilal í Katar - Mahrez og Toney í stuði
Canon

Mynd: EPA

Óvænt tap hjá Al-Hilal í Katar - Mahrez og Toney í stuði
Canon

Mynd: EPA

Óvænt tap hjá Al-Hilal í Katar - Mahrez og Toney í stuði
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.