Fotbolti.net
28.10.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Nær næsta undirbúningstímabili eftir vel heppnaða aðgerð

Nær næsta undirbúningstímabili eftir vel heppnaða aðgerð
Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Georgíski kantmaðurinn Khvicha Kvaratskhelia ætti að ná næsta undirbúningstímabili eftir vel heppnaða aðgerð.
Kvaratskhelia: Af hverju ég?
TENGT EFNI

Kvaratskhelia: Af hverju ég?

Kvaratskhelia sleit krossband á hægra hné í 4-2 sigri Evrópumeistara Paris Saint-Germain gegn Barcelona í miðri viku. Hann var strax sendur í aðgerð og gæti bataferlið tekið allt frá 6 að 9 mánuðum.

Þessi hæfileikaríki fótboltamaður verður því líklegast ekki meira með á tímabilinu en ætti að ná næsta undirbúningstímabili með PSG.

Kvaratskhelia er 25 ára gamall og hafði aðeins skorað tvö mörk og lagt eitt upp þegar hann sleit krossbandið. Hann kom með beinum hætti að 30 mörkum í 48 leikjum á síðustu leiktíð og endaði í sjötta sæti í kosningu um Ballon d'Or verðlaunin eftirsóttu.
Nær næsta undirbúningstímabili eftir vel heppnaða aðgerð
Canon

Mynd: EPA

Ligue 1 - karlar

#LiðLmunStig
1PSG8+717
2Rennes8+416
3Lille8+515
4Mónakó8+415
5Lyon8+614
6Paris FC8+414
7Lens8+413
8Marseille8+512
9Lorient8+112
10Nice8-211
11Toulouse8+110
12Auxerre8-610
13Brest8+29
14Angers8-68
15Le Mans8-57
16Strasbourg8-67
17Troyes8-115
18Le Havre8-72
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.