Fotbolti.net
27.10.26 - 23:10
Ívan Guðjón Baldursson

Arteta: Sást langar leiðir að strákarnir voru að reyna

Arteta: Sást langar leiðir að strákarnir voru að reyna
Canon

Mynd: EPA

Mikel Arteta þjálfari Arsenal var miður sín eftir afar óvænt tap í enska deildabikarnum.
Enski deildabikarinn: Fleetwood sló Arsenal úr leik
TENGT EFNI

Enski deildabikarinn: Fleetwood sló Arsenal úr leik

D-deildarlið Fleetwood Town sló Englandsmeistara Arsenal úr leik eftir vítaspyrnukeppni á heimavelli. Fleetwood náði forystunni í fyrri hálfleik og tókst Viktor Gyökeres að setja jöfnunarmark í upphafi síðari hálfleiks, en Arsenal tókst ekki að gera sigurmarkið þrátt fyrir dauðafæri.

Fleetwood hélt út og vann að lokum í vítaspyrnukeppni eftir að Bruno Guimaraes klúðraði af vítapunktinum og Illan Meslier mistókst að verja spyrnu frá Fleetwood.

„Í fyrsta lagi verð ég að óska Fleetwood til hamingju með þennan sigur og hvernig þeir spiluðu í dag. Þetta er sorgardagur fyrir okkur og ég get ekki sakað leikmenn um að hafa ekki lagt sig fram. Það sást langar leiðir að strákarnir voru að reyna," sagði Arteta.

„Strákarnir lögðu allt í sölurnar en við gáfum þeim alltof ódýrt mark í byrjun og það veitti þeim meiri trú og aukinn kraft.

„Við fengum fullt af tækifærum til að bæta við mörkum en nýttum þau ekki. Fótbolti virkar þannig að ef þú nýtir ekki færin þín þá taparðu og það er það sem gerðist í kvöld. Því miður erum við úr leik.

„Svona er fótboltinn. Þetta er partur af því sem gerir þessa íþrótt svo fallega."


Sextán ára gamall Max Dowman fékk tækifærið í byrjunarliði Arsenal en lét reka sig af velli með beint rautt spjald á 85. mínútu, þegar hann sparkaði í liggjandi leikmann Fleetwood í pirringskasti. Arteta virtist ósáttur og sagði nokkur orð við Dowman á leið hans af velli.

„Ég talaði bara um eitthvað sem við vorum búnir að ræða fyrir leikinn líka."
Arteta: Sást langar leiðir að strákarnir voru að reyna
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.