Fotbolti.net
27.10.26 - 23:23
Ívan Guðjón Baldursson

Þjálfari Fleetwood: Sagði strákunum bara að njóta sín

Þjálfari Fleetwood: Sagði strákunum bara að njóta sín
Canon

Mynd: Fleetwood

Matt Lawlor þjálfari Fleetwood Town var í sjöunda himni eftir sögulegan sigur á heimavelli gegn Englandsmeisturum Arsenal í deildabikarnum fyrr í kvöld.
Enski deildabikarinn: Fleetwood sló Arsenal úr leik
TENGT EFNI

Enski deildabikarinn: Fleetwood sló Arsenal úr leik

Fleetwood náði forystunni á 21. mínútu og jöfnuðu gestirnir í upphafi síðari hálfleiks en fóru illa að ráði sínu eftir það. Meistararnir klúðruðu nokkrum dauðafærum og hélt Fleetwood stöðunni jafnri út venjulegan leiktíma, svo grípa þurfti til vítaspyrnukeppni. Þar skoruðu heimamenn úr öllum sínum spyrnum á meðan Bruno Guimaraes brenndi af í liði Arsenal.

„Ég sagði bara við strákana að þeir ættu að njóta sín og ekki að gleyma því að við eigum svo deildarleik á laugardaginn, en ég trúi ekki niðurstöðunni. Okkur tókst að slá ríkjandi Englandsmeistara úr leik," sagði Lawlor.

„Við vissum það fyrir leikinn að við ætluðum ekki að reyna að yfirspila Englandsmeistarana. Við vorum mjög heppnir á köflum en strákarnir vörðust frábærlega og börðust hetjulega til að koma þessu í vítaspyrnur. Við erum svo stoltir að hafa slegið út andstæðinga sem við horfum á í sjónvarpinu í hverri viku.

„Ég býst við að allur bærinn sé að springa úr stolti."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.