Fotbolti.net
27.10.26 - 17:00
Kári Snorrason

Rúnar rætt við Emil - „Fékk samningstilboð um mitt sumar og hefur ekki svarað því“

Hefur alls skorað 77 mörk í efstu deild.

Hefur alls skorað 77 mörk í efstu deild.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Samningur Emils Atlasonar við Stjörnuna rennur út um miðjan nóvember og er óvíst hvort að framherjinn verði áfram hjá Garðabæjarfélaginu.

Emil, sem er 33 ára, hefur leikið með Stjörnunni frá árinu 2020 og var markahæsti leikmaður liðsins á nýafstöðnu tímabili.

Fótbolti.net ræddi við Rúnar Pál Sigmundsson, nýráðinn þjálfara Stjörnunnar, á blaðamannafundi félagsins í dag og spurði hvort hann vildi halda Emil.
Emil Atla eftirsóttur
TENGT EFNI

Emil Atla eftirsóttur

„Ég átti mjög gott samtal við Emil. Hann þarf að átta sig á því á hvað hann vill gera sjálfur. Hvar hans metnaður liggur. Hann fékk samningstilboð um mitt sumar og hefur ekki svarað því. Við þurfum að sjá hvað setur,“ sagði Rúnar.

Í slúðurpakka Fótbolta.net sem var birtur fyrr í mánuðinum var Emil orðaður við Víking, Fram og KR - þrjú efstu lið deildarinnar.

Bergvin Fannar í sigtinu
Bergvin Fannar Helgason rifti samningi sínum við ÍR á dögunum en þessi 23 ára gamli framherji hefur verið sterklega orðaður við Stjörnuna. Viktor Bjarki Arnarsson, nýr yfirmaður fótboltamála hjá liðinu, var spurður fyrr í dag hvort að Bergvinværi væntanlegur á Samsungvöllinn.

„Það verður að koma í ljós. Sannarlega er það orðrómur. Ekkert klárt ennþá, en við vonum að það gangi í gegn,“ sagði Viktor í samtali við Fótbolta.net fyrr í dag.
Bergvin Fannar rifti samningi sínum við ÍR á dögunum.

Bergvin Fannar rifti samningi sínum við ÍR á dögunum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar tekur undir gagnrýni á leikform Stjörnuliðsins - „Leikmenn þurfa líka að líta í eigin barm“

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.