Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 28. nóvember 2021 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fór fögrum orðum um Cecilíu - „Erfitt að skora hjá henni"
Icelandair
Cecilía Rán Rúnarsdóttir.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Cecilía Rán Rúnarsdóttir hefur spilað fimm A-landsleiki fyrir Ísland og haldið hreinu í fjórum þeirra.

Cecilía er aðeins 18 ára gömul og á svo sannarlega framtíðina fyrir sér. Hún var að klára sitt fyrsta tímabil í atvinnumennsku með Örebro í Svíþjóð og næst fer hún til Everton á Englandi.

Agla María Albertsdóttir fór fögrum orðum um markvörðinn efnilega á fréttamannafundi í gær.

„Það er mjög erfitt að skora hjá henni. Hún er líka búin að bæta sig svakalega frá því hún kom fyrst inn í landsliðið. Hún á eftir að ná mjög langt. Það er engin spurning, hún er virkilega góður markvörður."

„Hún er mjög 'vocal' og hún er nútímamarkvörður að því leytinu til að hún er mjög góð á milli stanganna og einnig mjög góð í fótunum. Hún er tæknilega góð og það er mikill kostur fyrir hana," sagði Agla.
Athugasemdir
banner
banner