Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 28. nóvember 2021 12:45
Aksentije Milisic
Fyrrverandi liðsfélagi Helga Vals tók rosalega dýfu eftir snertingu frá dómara
Mynd: Getty Images
Skrautlegt atvik átti sér stað í í Copa Libertadores þar sem Palmeiras og Flamengo mættust.

Í framlengingunni þá klappaði dómari leiksins leikmanni Palmeiras, Deyverson, létt á bakið en Deyverson hrundi þá niður í jörðina eins og hann hafi verið kýldur.

Deyverson og félagar hans í Palmeiras voru yfir í leiknum og hann virðist hafa verið að tefja leikinn með þessum hætti. Ekki á hverjum degi sem leikmaður tekur dýfu eftir snertingu frá dómara leiksins.

Þetta skrautlega atvik má sjá hér neðst í fréttinni en Deyverson lék með Helga Val Daníelssyni í eitt tímabil hjá Belenenses í Portúgal. Helgi Valur setti færslu á Twitter og var með skilaboð til gamla liðsfélagans.




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner