Eric Bailly, varnarmaður Manchester United, segir að leikmenn liðsins hafi verið látnir vita af því að nýr þjálfari sé að koma inn og taka við liðinu.
Þjóðverjinn Ralf Rangnick mun taka við liðinu út tímabilið. United hefur ekki staðfest þetta enn, en Bailly segir að leikmenn hafi verið látnir vita.
Eftir jafnteflið gegn Chelsea í kvöld, sagði Bailly: „Við vorum látnir vita í búningsklefanum að það er að koma nýr þjálfari inn."
Michael Carrick hefur stýrt United í síðustu tveimur leikjum liðsins, en líklegt er að leikurinn í kvöld hafi verið hans síðasti. Ráðningin á Rangnick kemur til með að vera staðfest í þessari viku.
Næsti leikur Man Utd er gegn Arsenal á fimmtudag og er ágætis möguleiki á Rangnick stýri liðinu þar.
Eric Bailly: "We have been told in the dressing room about the arrival of the new manager." #mulive [@LaurensJulien]
— utdreport (@utdreport) November 28, 2021
Athugasemdir