Búist við öðru tilboði frá Arsenal - Býr Fati til pláss fyrir Rashford? - Hvað verður um Tel?
   mið 29. janúar 2025 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hemmi Hreiðars: Erum að sjá hvort við þurfum að fylla þau skörð eða ekki
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Örn lék með ÍR á láni sumarið 2023.
Ólafur Örn lék með ÍR á láni sumarið 2023.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Arnar hefur verið aðalmarkmaður HK síðustu ár.
Arnar hefur verið aðalmarkmaður HK síðustu ár.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér líst bara mjög vel á allt saman hérna, ég er hrikalega spenntur fyrir framhaldinu, þetta er stór klúbbur og miklir möguleikar. Það er gott fólk hér sem ég vinn með og leikmannahópurinn ótrúlega flottur og spennandi; margir ungir og spennandi sem eiga eftir að taka stór hlutverk," segir Hermann Hreiðarsson, þjálfari HK, um byrjunina á undirbúningstímabilinu.

HK féll úr Bestu deildinni síðasta haust en hefur náð að halda mörgum leikmönnum áfram innan sinna raða. Þar á meðal eru reynsluboltar eins og Leifur Andri Leifsson, Ívar Örn Jónsson, Atli Arnarson og Arnþór Ari Atlason.

„Það er bara ofboðslega mikilvægt að vera með góða blöndu og vera með fínt jafnvægi milli ungra leikmanna og svo eldri. Eins og menn vita þá er mjög misjafnt hjá ungum leikmönnum hvernig stöðugleikinn er. Þú færð hann í gegnum reynslumeiri leikmenn sem þekkja klúbbinn og hafa verið hér í mörg ár. Við erum með þau gæði að þú veist alveg hvað þú færð. Það er gott fyrir unga leikmenn að hafa eldri til þess að leiðbeina sér og hjálpa til við að þróa þetta allt í rétta átt."

Markmannsmálin í toppmálum
Arnar Freyr Ólafsson var aðalmarkmaður HK í fyrra þar til að hann sleit hásin. Þá kom inn Daninn Christoffer Petersen. Hvernig er staðan á markmannsmálum í dag?

„Arnar er á góðum batavegi og svo erum við með Óla (Ólaf Örn Ásgeirsson) sem var á láni hjá Völsungi í fyrra. Ég veit að við erum í toppmálum með markmannsmálin."

Vilja að það sé pláss fyrir banhungraða unga stráka
HK missti tvo framherja í vetur í Bestu deildina; Eiður Gauti Sæbjörnsson fór í KR og Atli Þór Jónasson var seldur til Víkings.

„Það er verið að skoða framherjamálin, erum að sjá hvort við þurfum að fylla þau skörð eða ekki. Það eru margir banhungraðir ungir strákar með mikla hæfileika sem við viljum að fái hlutverki þannig að við verðum að vanda okkur vel þar; við viljum ekki flýta okkur að neinu í þeim efnum. Við viljum að það sé pláss fyrir þessa stráka," segir Hemmi.

Hann staðfestir svo að HK sé áfram í viðræðum við Val um möguleg kaup á Þorsteini Aroni Antonssyni sem lék á láni með HK síðasta sumar.

Komnir/farnir hjá HK
Komnir
Aron Kristófer Lárusson frá Þór
Rúrik Gunnarsson frá KR
Dagur Ingi Axelsson frá Fjölni
Haukur Leifur Eiríksson frá Þrótti Vogum
Eiður Atli Rúnarsson frá ÍBV (var á láni)
Ólafur Örn Ásgeirsson frá Völsungi (var á láni)

Farnir
Atli Þór Jónasson til Víkings R.
Dagur Örn Fjeldsted í Breiðablik (var á láni)
Þorsteinn Aron Antonsson í Val (var á láni)
Eiður Gauti Sæbjörnsson í KR
Birkir Valur Jónsson í FH
Atli Hrafn Andrason í KR

Samningslausir
Christoffer Petersen (1997)
Tareq Shihab (2001)
Stefán Stefánsson (2004)
Ísak Aron Ómarsson (2004)
Andri Már Harðarson (2002)
Athugasemdir
banner
banner
banner