Búist við öðru tilboði frá Arsenal - Býr Fati til pláss fyrir Rashford? - Hvað verður um Tel?
   mið 29. janúar 2025 21:24
Brynjar Ingi Erluson
Kovac tekur við Dortmund
Mynd: Getty Images
Þjálfaraleit Borussia Dortmund er á enda en Florian Plettenberg hjá Sky segir að búið sé að ná samkomulagi við króatíska þjálfarann Niko Kovac.

Dortmund lét Nuri Sahin taka poka sinn eftir slaka frammistöðu fyrri hluta tímabilsins.

Daninn Mike Tullberg tók við sem bráðabirgðaþjálfari á meðan Dortmund hefur unnið í því að finna eftirmann Sahin, en hann er nú fundinn.

Plettenberg segir að Niko Kovac sé að taka við keflinu og gerir eins og hálfs árs samning.

Kovac stýrði síðast Wolfsburg en var rekinn í mars á síðasta ári. Áður stýrði hann Mónakó, Eintracht Frankfurt, Bayern München og króatíska landsliðinu.

Ralf Rangnick, þjálfari Austurríkis, kom einnig til greina og fundaði með Dortmund, en Kovac varð fyrir valinu og verður hann líklega kynntur fyrir helgi.
Athugasemdir
banner
banner
banner