Búist við öðru tilboði frá Arsenal - Býr Fati til pláss fyrir Rashford? - Hvað verður um Tel?
   mið 29. janúar 2025 14:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Siggi Höskulds: Fer eftir því hvernig hlutirnir hjá Aroni Einari þróast úti
Lengjudeildin
Siggi Höskulds ræddi um breytingarnar á leikmannahópi Þórs.
Siggi Höskulds ræddi um breytingarnar á leikmannahópi Þórs.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óvíst er hvort Aron Einar spili með Þór í sumar.
Óvíst er hvort Aron Einar spili með Þór í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ibrahima Balde var fyrsta nafn á blaði hjá Þór í haust.
Ibrahima Balde var fyrsta nafn á blaði hjá Þór í haust.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Franko Lalic og Aron Birkir munu berjast um markmannsstöðuna. Lalic er einnig fenginn sem markmannsþjálfari.
Franko Lalic og Aron Birkir munu berjast um markmannsstöðuna. Lalic er einnig fenginn sem markmannsþjálfari.
Mynd: Raggi Óla
Atli Sigurjóns er orðaður við heimkomu en Siggi býst ekki við honum í sumar.
Atli Sigurjóns er orðaður við heimkomu en Siggi býst ekki við honum í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Forgangsmál að halda Sella.
Forgangsmál að halda Sella.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Kristófer rifti við Þór og samdi við HK.
Aron Kristófer rifti við Þór og samdi við HK.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Juan Guardia var öflugur með Völsungi í fyrra.
Juan Guardia var öflugur með Völsungi í fyrra.
Mynd: 640.is - Hafþór Hreiðarsson
Orri er mættur heim í Þór.
Orri er mættur heim í Þór.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þórsarar enduðu í 10. sæti á síðasta tímabili og er stefnan sett á að berjast mun ofar á komandi tímabili.
Þórsarar enduðu í 10. sæti á síðasta tímabili og er stefnan sett á að berjast mun ofar á komandi tímabili.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Það hafa orðið talsverðar breytingar á leikmannahópi Þórs frá því að síðasta tímabili lauk, níu leikmenn eru farnir og fimm leikmenn eru komnir.

Sigurður Heiðar Höskuldsson er þjálfari Þórs og ræddi hann við Fótbolta.net um breytingarnar á leikmannahópnum og einstaka leikmenn.

Aron Einar - Kemur ekki í ljós strax
Aron Einar Gunnarsson samdi við Al-Gharafa í Katar síðasta haust og hefur í vetur spilað með liðinu í Meistaradeild Asíu. Hvernig er staðan í dag varðandi mögulega endurkomu í Þór?

„Staðan kemur ekki í ljós strax. Ég held að draumur Arons sé að taka slaginn aftur með okkur að einhverju leyti í sumar. En við horfum á það, bæði núna og eins í fyrra, sem einhvern bónus. Við erum ekkert frekar að búast við honum, en við vonum auðvitað að hann spili eitthvað og helst sem mest. Það kemur ekkert í ljós almennilega strax, fer eftir því hvernig hlutirnir þróast hjá honum úti."

Biggi Hlyns - Í námi og vildi reyna fyrir sér í efstu deild
Birgir Ómar Hlynsson var lánaður frá Þór í Bestu deildar lið ÍBV. Hvernig kom það til?

„Hann er í skóla fyrir sunnan, er þar í íþróttafræði. Hann kom seint inn í þetta í fyrra með okkur og fór snemma. Þegar þú ert að þróa nýjan leikstíl og búa til nýtt lið með nýjum þjálfara þá eru það ekkert kjöraðstæður að vera koma seint inn í hlutina. Hann náði seint takti með okkur í fyrra. Við tókum þá ákvörðun í vetur að vera ekki með neina leikmenn fyrir sunnan hálft í hálft við að vera hér fyrir norðan. Birkir Heimis var þannig í fyrra, var svolítið mikið fyrir sunnan. Við ákváðum að skrúfa alveg fyrir það. Við ákváðum að lána Birgi og hann langaði að reyna fyrir sér og spila í efstu deild. Mér finnst þetta bara frábær lending að hann væri að máta sig við þá deild núna. Vonandi gengur það hjá honum. Við búumst svo við því að þegar náminu er lokið og við komnir upp í efstu deild að hann komi bara aftur."

Aron Kristófer - Var viðbúið
Aron Kristófer Lárusson rifti samningi sínum við Þór í vetur og samdi í kjölfarið við HK. Kom það á óvart?

„Nei, það var alveg þannig séð viðbúið, þetta var svona 50-50 hvort hann yrði áfram. Við vildum náttúrulega halda honum en það var flutningur norður og vinnutengdir hlutir sem gerðu það að verkum að hann og konan ákváðu að vera áfram í bænum."

Voru það vonbrigði að hafa keypt leikmann sem var svo ekki lengur en örfáa leiki?

„Já að sjálfsögðu, en það var eitthvað samt sem við vissum að gæti orðið lendingin."

Franko Lalic - Þjálfar manninn sem hann er í samkeppni við
Aron Birkir Stefánsson skrifaði undir nýjan samning við Þór. Er samkeppnin milli Lalic og Arons jöfn, eða er Aron númer eitt?

„Við erum að fara nýja leið í markmannsmálunum okkar. Franko kemur inn sem spilandi markmannsþjálfari, sláum í raun tvær flugur í einu höggi, ég er ekki viss um að þetta hafi verið gert áður. Þeir Aron og Franko eru með þau skilaboð að þeir séu í samkeppni um stöðuna. Hvort að það virki að vera þjálfa þann sem þú ert í samkeppni við, það verður að koma í ljós. En ég held að bæði Aron og Franko séu það faglegir að það muni bara lukkast vel."

Ibrahima Balde - Fyrsta verk að fá hann
Miðjumaðurinn Balde kemur frá Vestra og vakti nokkra athygli síðasta sumar í Bestu deildinni.

„Ég er virkilega ánægður að hafa náð honum, það var okkar fyrsta verk eftir að Vestri leyfði honum að fara. Hann heillaði mig mjög mikið seinni partinn á tímabilinu 2023 í Lengjudeildinni með Vestra. Svo hélt hann því áfram inn í tímabilið í fyrra. Þetta var kannski engin flugeldasýning seinni partinn, en þorrinn af mótinu í fyrra fannst mér mjög góður hjá honum. Okkur vantaði svona týpu af leikmanni inn í okkar lið. Þetta var í forgangi eftir síðasta tímabil að ná að klára hann sem fyrst. Ég geri ráð fyrir að fleiri félög hafi hugsað sér að fá hann í sitt lið. Við vildum gera þetta hratt og grípa hann eins fljótt og við gátum og vorum mjög sáttir með að landa því."

Yann Affi - Mjög góður leikmaður í þessari deild
Hvernig kemur til að leikmaður, Yann Emmanuel Affi, komi í Þór frá stórliðinu BATE Borisov?

„Eins og bara flestir leikmenn enda á Íslandi, það eru umbar sem ég hef verið í samskiptum lengi sem koma með þennan prófíl og svo þarf bara finna hvort það sé hægt, allar hliðar á málinu skoðaðar. Úr verður að hann endar hjá okkur. Ég geri ráð fyrir að þetta verði mjög góður leikmaður í þessari deild."

Það skal þó sagt að BATE hefur endaði í 5. og svo 8. sæti á síðustu tveimur tímabilum í deildinni heima fyrir sem er versti árangur liðsins í mjög langan tíma.

Juan Guardia - Minnir á Nacho Heras
Hvaða hlutverk er spænski varnarmaðurinn að koma í?

„Hann er að koma í einhverjar af þessum varnarstöðum, getur spilað nokkrar stöður. Hann heillaði mig á æfingu þegar hann kom aðeins á reynslu hjá okkur. Hann er nokkuð spennandi týpa af leikmanni sem við sjáum fyrir okkur að geti leyst báðar bakvarðastöðurnar og hafsentinn. Við ætlumst til mikils af honum. Hann er ungur og spennandi, rosalega metnaðarfullur sem heillaði okkur. Hann minnir mig á annan Spánverja sem ég þjálfaði hjá Leikni, Nacho Heras, mér finnst þeir vera svipaðar týpur af leikmönnum. Það er týpa sem mér líkar vel við."

Orri Sigurjóns - Ætlast til að hann spili sem flesta leiki
Orri SIgurjónsson er kominn aftur heim í Þór eftir tvö tímabil með Fram í efstu deild. Orri missti mikið úr á síðasta tímabili vegna höfuðmeiðsla. Hvernig er heilsan á honum?

„Mér skilst að heilsan á honum sé bara þrusu góð og ég ætlast til þess að hann spili sem flesta leiki næsta sumar, held að það sé ekkert sem er því til fyrirstöðu. Honum líður vel í skrokknum, var í veseni með höfuðmeiðsli en líður bara vel gagnvart því. Ég veit ekki betur en að hann sé bara klár og verði í stóru hlutverki hjá okkur. Ég sé hann bæði sem miðjumann og hafsent. Hann kemur alfarið norður 1. mars en þangað til mun hann eitthvað spila í Lengjubikarnum með okkur. Við eigum eftir að sjá hvar Orri passar best inn."

Elli Helga - Lét ekki reyna á að fá hann norður
Það var slúðrað um það í vetur að Siggi hefði rætt við sinn fyrrum lærisvein hjá Val, Elfar Frey Helgason. Varð eitthvað úr því?

„Ég talaði ekki við Ella. Elli er einn besti fótboltamaður sem ég hef þjálfað, hann er orðinn svolítið gamall, er með fjölskyldu; tvö börn og konu, þannig ég lét ekkert reyna á það. Ég hugsaði það mjög mikið, en ég lét ekki reyna á það."

Atli Sigurjóns - Verður líklega í Reykjavík í sumar
Þórsarinn Atli Sigurjónsson, eldri bróðir Orra, hefur verið orðaður við heimkomu í vetur. Hann er enn án félags eftir að samningur hans við KR rann út fyrir áramót. Hvernig er samtalið við Atla?

„Hann er að hugsa sér að vera eitthvað áfram í Reykjavík, við erum bara að bíða klárir þegar hann tekur ákvörðun um að flytja norður. Við höfum eitthvað verið að reyna ýta við honum að koma fyrr heim heldur en hann er að hugsa sér, en eins og staðan er í dag þá vill hann vera áfram í Reykjavík í allavega eitt ár í viðbót. Við erum kannski ekki 100% búnir að gefa upp vonina, en það er ólíklegt."

Vantar kantmann eftir að Fannar meiddist
„Ég er nokkuð sáttur með hópinn eins og hann er, mér finnst okkur vanta 1-2 leikmenn í viðbót og þá er ég mjög sáttur. Það voru mörg skörð að fylla frá því í fyrra og það vantar upp á að fylla upp í tvö," segir Siggi.

Hvaða týpur ertu að horfa í að vanti?

„Mig vantar kantmann. Við missum Fannar Daða í krossbandsslit, þar bættist við eitt skarð í viðbót til að fylla í. Ég er að leita mér að kantmanni og svo gæti ég alveg hugsað mér að taka einn miðjumann í viðbót."

Vill hafa leikina aðeins lokaðri
Ertu að sjá aðra nálgun inn í þetta tímabil miðað við það síðasta?

„Það er fullt af hlutum, taktískt, sem maður lærði á síðasta tímabili. Hvernig fótbolti er spilaður í þessari deild, hvernig nálgun maður þarf að hafa á leikina. Það er eitthvað sem við erum að skoða og reyna bæta okkur í. Við vorum lélegir í 'transition' augnablikum í leikjunum, vorum að fá mikið af upphlaupum á okkur, leikirnir svolítið opnir. Við viljum loka leikjunum aðeins meira og vera hættulegri í kringum teig andstæðinganna. Við bjuggum til alltof lítið af færum í fyrra og nýttum þau færi illa. Úti á velli, á milli teiganna, vorum við að mörgu leyti góðir megnið af tímabilinu. En í kringum teigana vorum við mjög slappir. Það voru vonbrigði því að yfir veturinn vorum við mjög góðir í kringum teig andstæðinganna, fengum mörg færi og skoruðum mikið."

Forgangsmál að halda Sella
Sveinn Leó Bogason, aðstoðarþjálfari Þórs, var talsvert orðaður við Dalvík/Reyni síðasta haust.

„Ég er virkilega ánægður með að halda honum. Það var fyrir mér gagnvart stjórninni forgangsmál að hann yrði með mér áfram. Það er gott samstarf okkar á milli og ég lét vita af því að ég vildi að hann yrði áfram. Við fengum svo Arnar Geir yfirþjálfara meira inn í meistaraflokkinn. Við erum þrír á æfingasvæðinu ásamt markmannsþjálfara. Ég er virkilega ánægður með það fyrirkomulag."

Komið að því að þeir sýni að þeir geti verið í toppbaráttuliði
Það eru leikmenn í kringum tvítugt í Þórsliðinu sem hafa fengið stór hlutverk síðustu ár. Sem dæmi eru leikmenn eins og Aron Ingi Magnússon, Kristófer Kristjánsson og Ingimar Arnar Kristjánsson.

„Það eru 3-4 ungir leikmenn sem hafa fengið mikið traust, bæði síðasta sumar og líka þar á undan. Það hefur skilað liðinu í 7. og svo 10. sæti. Það er komið að því að þeir sýni að þeir geti verið í liði sem er að berjast almennilega um að fara upp. Þeir eru orðnir 20-21 árs og eru fyrir mér ekkert ungir leikmenn ennþá, eru með alla þessa leiki á bakinu. Ég held að núna muni þeir skili miklu til liðsins, hef mikla trú á þeim," segir Siggi.

Hann segir þá að það sé samtal í gangi við Bjarka Þór Viðarsson um nýjan samning. Þjálfarinn segir að allir fyrir utan Fannar Daða og Hermann Helga Rúnarsson séu heilir. Hann segir að það sé um mánuður í að Hermann snúi til baka.
Athugasemdir
banner
banner