Ismaila Sarr var allt í öllu er Watford skellti Liverpool í enska boltanum í dag.
Sarr skoraði fyrstu tvö mörk leiksins og lagði það þriðja upp. Hann komst nálægt því að fullkomna þrennuna áður en honum var skipt af velli.
Fyrir leikinn var Sarr spurður út í samlanda sinn Sadio Mane hjá Liverpool, en þeir leika saman fyrir landslið Senegal.
„Mane er stóri bróðir minn og allra úr minni kynslóð. Hann er góð manneskja og við fylgjum hans fordæmi," sagði Sarr.
„Hann er alltaf að hjálpa mér og er duglegur að halda sambandi, sérstaklega á erfiðum tímum. Þegar ég var meiddur töluðum við mikið saman og gaf hann mér góð ráð."
Athugasemdir