Man City gerir tilboð í Olmo - Barcelona reynir líka að fá spænska landsliðsmanninn - Wan-Bissaka vill ekki fara til West Ham
   fim 29. febrúar 2024 19:37
Brynjar Ingi Erluson
Dier hefur uppfyllt öll skilyrði til að gera félagaskiptin varanleg
Mynd: Getty Images
Enski varnarmaðurinn Eric Dier hefur uppfyllt öll þau skilyrði til að gera félagaskipti hans til Bayern München varanleg.

Dier, sem er þrítugur, kom til Bayern á láni frá Tottenham í síðasta mánuði.

Samningur hans við Tottenham rennur út eftir tímabilið og er það þegar ljóst að hann mun yfirgefa félagið.

Lánssamningur hans hjá Bayern er á þann veg að ef hann uppfyllir ákveðin skilyrði þá á hann möguleika á að fá samning hjá félaginu í sumar.

Hann hefur uppfyllt öll skilyrði og fær hann því nýjan eins árs samning.

Það þykir hins vegar ólíklegt að hann verði áfram þar. Thomas Tuchel, maðurinn sem fékk hann til Bayern, hættir í sumar og verður því líklegast einhver hreinsun þegar nýr þjálfari tekur við.
Athugasemdir
banner
banner
banner