Man City gerir tilboð í Olmo - Barcelona reynir líka að fá spænska landsliðsmanninn - Wan-Bissaka vill ekki fara til West Ham
   fim 29. febrúar 2024 10:15
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Vefur KSÍ 
KSÍ refsar fyrir ólöglega leikmenn - Háar sektir fyrir lítil félög
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KSÍ greinir frá því á vef sínum í dag að tvö félög hafi verið sektuð og leikir þeirra dæmdir tapaðir fyrir að tefla fram ólöglegum leikmönnum.

Þetta eru lið KV og Léttis sem þurfa að taka á sig þessa refsingu en um er að ræða 60 þúsund krónu sekt fyrir hvort félag, upphæð sem skiptir máli fyrir svo lítil félög og hefði verið betra að fara að reglum og sleppa við hana.

Í leik Árbæjar gegn KV, þann 23. febrúar, spilaði Freyr Þrastarson með KV en hann er skráður í KR. Af þessum sökum hefur KV verið sektað um 60.000 krónur og úrslit leiksins skráð 3-0 Árbæ í vil.

Í leik Léttis gegn RB, þann 24. febrúar, spilaði Kári Jóhannesarson með liði Léttis en hann er skráður í Fjölni. Af þessum sökum hefur Léttir verið sektað um 60.000 krónur og úrslit leiksins skráð 0-3 RB í vil.

Sektirnar og refsingin sem félögin fá eru eftir reglubók KSÍ og í raun ekki hægt að komast hjá því að fá refsingu kjósi menn að fara ekki eftir reglunum. Á þetta er minnt á vef KSÍ þar sem farið er yfir reglurnar.

Í reglugerðum KSÍ um deildarbikarkeppni karla og kvenna, greinum 10.1 og 11.2 segir:
Félag, sem notar leikmann sem ekki hefur keppnisleyfi með því eða notar leikmann, þjálfara eða forystumann í leikbanni, telst hafa tapað leiknum með markatölunni 0-3 nema tap hafi verið stærra, þá skal sú markatala ráða. Staðfesti skrifstofa KSÍ að þátttakandi hafi verið óhlutgengur í leik skal mótanefnd þegar í stað skrá úrslit leiksins skv. ofangreindu og tilkynna það viðkomandi félögum. Heimilt er að kæra slíka skráningu til aga- og úrskurðarnefndar KSÍ og skal kærufrestur telja frá þeim degi sem tilkynningin er gefin út. Viðkomandi félög verða sektuð samkvæmt reglugerð KSÍ um Deildarbikarkeppni .

Samkvæmt reglum KSÍ um Deildarbikarkeppni segir í grein 10.1:
Lið, sem mætir ólöglega skipað til leiks, skal sæta sekt að upphæð kr. 30.000 og að auki kr. 30.000 fyrir hvern leikmann sem ekki hefur keppnisleyfi með viðkomandi félagi og tekur þátt í leiknum. Félag, sem notar leikmann, þjálfara eða forystumann í leikbanni, skal sæta sektum að upphæð kr. 100.000.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner