Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 29. mars 2021 19:00
Victor Pálsson
„Nú geta allir verið sammála eftir að Tuchel valdi hann"
Mynd: Getty Images
Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, segir að allir séu nú sammála um að Mason Mount sé frábær knattspyrnumaður.

Mount skoraði í 2-0 sigri Englands á Albaníu á dögunum í undankeppni HM en hann er lykilmaður Thomas Tuchel í sterku Chelsea liði þessa dagana.

Frank Lampard var áður stjóri Chelsea en Mount var oft talinn vera í of miklu uppáhaldi þar eftir dvöl þeirra saman hjá Derby í næst efstu deild.

Miðjumaðurinn hefur þó sannað sig undir nýjum stjóra og mun líklega spila stórt hlutverk með Englandi á EM í sumar.

„Hann er frábær leikmaður en ég sagði það í haust. Ég býst við því að nú þegar Thomas Tuchel velur hann þá eru allir sammála. Þegar Frank valdi hann þá taldi það ekki með af einhverjum ástæðum," sagði Southgate.

„Hann er framúrskarandi leikmaður. Hann er góður í að finna pláss, fer mjög vel með boltann, býr til færi og getur skorað mörk. Hann var frábær í leiknum."
Athugasemdir
banner