Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 29. mars 2023 22:25
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Siggi Raggi: Planið að halda betur í okkar menn í framtíðinni
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Fótbolti.net spáir Keflavík 10. sæti en liðinu var spáð falli á kynningarfundi Bestu deilarinnar í gær.


Leikmannahópurinn er mikið breyttur frá síðasta sumri þar sem Keflavík endaði í 7. sæti en sjö byrjunarliðsmenn frá því síðasta sumar hafa horfið á braut í vetur.

Liðið hefur bætt við sig nokkrum leikmönnum í vetur en Stefan Ljubicic er á leiðinni frá KR og úkraínski miðvörðurinn Oleksiy Kovtun er einnig við það að skrifa undir hjá félaginu.

„Við erum alltaf að skoða í kringum okkur. Bæði geta einhverjir leikmenn farið og einhverjir komið í staðinn. Við erum stöðugt að vinna í því að styrkja hópinn okkar, hann er mjög breyttur frá því í fyrra, kannski breiðari. Það eru fleiri ungir og efnilegir leikmenn sem við væntum mikils af í sumar og þurfa að stíga upp," sagði Sigurður Ragnar þegar Fótbolti.net spjallaði við hann í gær.

Hann vonast til að geta haldið betur í sína bestu leikmenn í framtíðinni.

„Það er planið hjá okkur að halda betur í okkar bestu leikmenn í framtíðinni. Til þess þarf félagið að stækka utanvallar, við erum að vinna í því að fá góða styrktaraðila með okkur í það og þá getum við haldið betur í þessa efnilegu leikmenn sem við höfum í dag og vonandi skara framúr í sumar."


Komnir
Daníel Gylfason frá Kórdrengjum
Gunnlaugur Fannar Guðmundsson frá Kórdrengjum
Jordan Smylie frá Ástralíu
Marley Blair
Mathias Rosenörn frá KÍ Klaksvík
Sami Kamel frá Noregi
Viktor Andri Hafþórsson frá Fjölni

Farnir
Adam Ægir Pálsson í Val (var á láni frá Víkingi)
Dani Hatakka í FH
Ingimundur Aron Guðnason hættur
Joey Gibbs í Stjörnuna
Kian Williams til Kanada
Patrik Johannesen í Breiðablik
Rúnar Þór Sigurgeirsson til Öster
Sindri Kristinn Ólafsson til FH
Adam Árni Róbertsson í Þrótt Vogum


Keflvíkingar að semja við leikmann - „Mun styrkja liðið fullt"
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner