Það fóru tveir leikir fram í Bestu deild karla. Á Lambhagavellinum hélt Fram áfram að vera eitt skemmtilegasta lið deildarinnar þegar Breiðablik kom í heimsókn.
Það er oft talað um að eldast eins og gott rauðvín og það á sannarlega við í tilfelli Kennie Chopart sem skoraði tvö mörk fyrir Fram á fyrstu fimm mínútum leiksins.
Kennie, sem verður 36 ára eftir nokkra daga, ákvað að blása til sýningar í byrjun leiks og var staðan 2-0 þegar fimm mínútur voru búnar. Kennie hefur verið frábær í sumar og er á meðal markahæstu leikmanna deildarinnar.
Ívar Örn Árnason gerði mistök í öðru marki Fram en hann bætti aðeins upp fyrir það með því að minnka muninn eftir hálftíma leik. En fyrir leikhlé komst Fram í 3-1 þegar Freyr Sigurðsson skoraði.
Veislan hélt áfram í síðari hálfleik en Jakob Byström kom Fram í 4-1 þegar tíu mínútur voru búnar af honum. Þá var röðin komin að Kristófer Inga Kristinssyni en hann skoraði tvisvar með stuttu millibili og minnkaði muninn í 4-3, þvílíkur leikur.
Blikar reyndu hvað þeir gátu til að jafna og settu pressu á Fram en fundu ekki jöfnunarmarkið. Lokatölur 4-3 fyrir Fram í bráðskemmtilegum leik. Framarar hafa verið miklir skemmtikraftar í sumar og það er að færast meiri skemmtun í leik Blika að undanförnu.
Fram er í þriðja sæti með 20 stig, tveimur stigum frá KR í öðru sæti. Á meðan er Breiðablik í fjórða sæti með 15 stig.
Ekki eins skemmtilegt í Kaplakrika
Í Kaplarika var ekki eins mikil skemmtun þegar FH og ÍA áttust við. Þetta eru tvö lið sem hafa verið að ströggla svolítið mikið í upphafi tímabilsins.
Guðmundur Þórarinsson átti skot í stöngina úr aukaspyrnu snemma leiks en annars voru færin ekki mörg í fyrri hálfleiknum. Liðin áttu erfitt með völlinn og gæðin voru ekki mikil, og það hélt bara áfram í seinni hálfleiknum.
En þegar stundarfjórðungur var eftir af venjulegum leiktíma kom eina mark leiksins þegar varamaðurinn Ómar Björn Stefánsson skoraði fyrir ÍA eftir frábæra sókn Skagamanna. Guðmundur Þórarinsson átti geggjaða sendingu inn fyrir og Ómar Björn skilaði boltanum í netið af krafti.
Lokatölur 0-1 fyrir ÍA sem lyftir sér upp í sjötta sæti með tólf stig. FH hefur hins vegar ekki enn unnið leik og er með tvö stig í næst neðsta sæti eftir níu stig. Það gengur hvorki né rekur hjá FH-ingum.
FH 0 - 1 ÍA
0-1 Ómar Björn Stefánsson ('76 )
Lestu um leikinn
Fram 4 - 3 Breiðablik
1-0 Kennie Knak Chopart ('3 )
2-0 Kennie Knak Chopart ('5 )
2-1 Ívar Örn Árnason ('30 )
3-1 Freyr Sigurðsson ('41 )
4-1 Jakob Byström ('55 )
4-2 Kristófer Ingi Kristinsson ('60 )
4-3 Kristófer Ingi Kristinsson ('69 , víti)
Lestu um leikinn


