Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 29. maí 2026 19:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Eldist eins og gott rauðvín
Kennie Chopart.
Kennie Chopart.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er oft talað um að eldast eins og gott rauðvín og það á sannarlega við í tilfelli Kennie Chopart.

Kennie, sem verður 36 ára eftir nokkra daga, ákvað að blása til sýningar í byrjun leiks Fram gegn Breiðabliks í Bestu deildinni í kvöld.

Lestu um leikinn: Fram 4 -  2 Breiðablik

Eftir aðeins fimm mínútur var Kennie búinn að skora tvö mörk.

„HVAÐ ER AÐ GERAST?!" skrifaði Ívar Björgvinsson í textalýsingu frá leiknum þegar Kennie skoraði annað mark sitt á fimmtu mínútu leiksins.

„Ívar Örn étinn aftast á vellinum af Kennie sem klárar þetta sjálfur í fjærhornið. Ótrúleg byrjun á þessum leik."

Kennie er núna búinn að skora sex mörk í átta leikjum á þessu tímabili en aðeins Elías Már Ómarsson og Aron Sigurðarson hafa skorað meira en hann í sumar. Það er merkilegt þar sem Kennie er hluti af varnarlínu Fram.
Slapp