Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 29. maí 2026 19:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gengur lítið hjá Freysa - Kolbeinn lagði upp
Freyr Alexandersson, þjálfari Brann.
Freyr Alexandersson, þjálfari Brann.
Mynd: EPA
Kolbeinn lagði upp.
Kolbeinn lagði upp.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það gengur lítið sem ekkert hjá lærisveinum Freys Alexanderssonar í Brann um þessar mundir.

Brann tapaði í kvöld 1-2 á heimavelli gegn Sarpsborg í norsku úrvalsdeildinni. Þetta var síðasti leikur Jóns Dags Þorsteinssonar fyrir félagið en hann hefur verið á láni frá Hertha Berlín. Kristall Máni Ingason var einnig í byrjunarliði Brann í kvöld.

Brann náði forystunni í leiknum en Sarpsborg sneri leiknum við með tveimur mörkum undir lok fyrri hálfleiks.

Brann hefur tapað þremur leikjum í röð í norsku úrvalsdeildinni og eru ekki fjarri fallsvæðinu, aðeins tveimur stigum á eftir Kristiansund sem er í 14. sæti en það lið sem endar þar fer í umspil um að halda sér uppi.

Það voru fjórir aðrir leikir í norsku úrvalsdeildinni í kvöld. Vålerenga vann 3-1 sigur á Kristiansund þar sem Kolbeinn Birgir Finnsson lagði upp mark fyrir Vålerenga. Júlíus Mar Júlíusson var í byrjunarliði Kristiansund en Hrannar Snær Magnússon kom inn af bekknum í síðari hálfleik.

Viðar Ari Jónsson gerði sjálfsmark í 2-2 jafntefli Álasunds og HamKam. Viðar Ari spilaði 80 mínútur fyrir HamKam en Ólafur Guðmundsson lék allan leikinn fyrir Álasund. Davíð Snær Jóhannsson var ekki með Álasundi í dag vegna meiðsla.

Þá gerðu Rosenborg og Bodö/Glimt 2-2 jafntefli. Alfreð Finnbogason er yfirmaður fótboltamála hjá Rosenborg sem er í næst neðsta sæti deildarinnar, ótrúlegt en satt.

Jafntefli í Svíþjóð
Í sænsku úrvalsdeildinni átti Júlíus Magnússon góðan leik þegar Elfsborg gerði 2-2 jafntefli gegn Örgryte á útivelli. Hann spilaði allan tímann á miðju Elfsborg.

Ari Sigurpálsson kom inn hjá Elfsborg í síðari hálfleik en liðið er í öðru sæti eftir ellefu leiki. Sirius er langefst í sænsku úrvalsdeildinni um þessar mundir.
Slapp
banner