Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 29. maí 2026 13:33
Kári Snorrason
Góðgerðarhelgi í Kaplakrika
Svona var góðgerðartreyjan á síðasta ári sem var til styrktar Gleym mér ei.
Svona var góðgerðartreyjan á síðasta ári sem var til styrktar Gleym mér ei.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Bæði karla- og kvennalið FH munu koma til með að leika í sérstökum góðgerðartreyjum í leikjum sínum um helgina.

Karlaliði FH tekur á móti ÍA í Kaplakrika í Bestu deildinni í kvöld en kvennaliðið fær Fram í heimsókn.

Þétt dagskrá verður í kringum þessa góðgerðarhelgi í Kaplakrika og hefst hún öll í kvöld þegar Steve Dagskrá bræður verða með pöbb kviss inni í tjaldi fyrir leik og verður treyjan þá kynnt.

Síðustu ár hefur skapast sú hefð að þriðji búningur FH sé helgaður ákveðnu góðgerðarfélagi. Þúsund krónur af hverri seldri treyju renna til félagsins og hefur Auður, helsti styrktaraðili FH, tvöfaldað þá upphæð.

Síðustu ár hafa safnast yfir 5 milljónir sem hafa runnið til Bleiku slaufunar, Píeta og Gleym mér ei. Mikil leynd ríkir yfir lit búningsins og því hvaða málefni verður styrkt þetta árið.

Föstudagur:
17:30 - Húsið opnar
18.00 - Steve Dagskrá með Kviss í tjaldinu
18:35 - Nýr búningur kynntur
19:15 - FH vs. ÍA

Laugardagur:
13:00 - Húsið og tjaldið opnar
14:00 - FH vs. Fram
16:00 - Úrslit meistaradeildar í tjaldinu.


Slapp
banner
banner