Ítalski miðillinn Gazzetta dello Sport segir frá því að Mason Greenwood, leikmaður Marseille, sé spenntur fyrir því að ganga til liðs við Roma í sumar.
Roma vill fá Greenwood til að taka við af Matias Soule sem er orðaður við Aston Villa.
Gazzetta dello Sport segir að Roma hafi átt jákvæð samskipti við umboðsmenn Greenwood.
Félögin hafa hins vegar ekki komist að samkomulagi en Gazzettan segir að Marseille vilji í kringum 50 milljónir evra fyrir hann.


